Algengar spurningar
- Við afgreiðum allar pantanir samdægurs eða næsta virka dag.
- Ef valið er að sækja vöru í verslun er hægt að sækja næsta virka dag.
- Ef valið er að fá heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu er pöntunin keyrð út af Dropp – yfirleitt samdægurs eða næsta virka dag.
- Þær pantanir sem fara í póst eru afhentar póstinum samdægurs eða næsta virka dag.
Leikfangaland býður upp á afmælisþjónustu sem felur í sér að við pökkum inn gjöfinni og skrifum í afmæliskort texta sem valinn er af viðskiptavin.
Þessi þjónusta kostar aukalega kr. 1500.
Hægt er að senda gjöfina á heimili afmælisbarnsins ef þess er óskað. (Greitt er aukalega fyrir sendingargjald)
Hægt er að greiða fyrir pantanir með greiðslukorti, millifærslu, Netgíró eða Pei.
Upplýsingar fyrir millifærslu:
Kt.: 440985-0259
Banki: 130-26-259
Ef valið er að fá sent með póstinum er sendingarkostnaðurinn samkvæmt gjaldskrá póstsins og greiðist af viðtakanda.
Ef valið er að fá pöntunina keyrða heim með Dropp eða að sækja á afhendingarstaði Dropp er sendingarkostnaðurinn gefinn upp í greiðsluferlinu.
Heimkeyrsla með Dropp er einungis í boði fyrir höfuðborgarsvæðið og ákveðna staði á suðvesturhorninu.
Hægt er að skipta vöru eða fá inneign í verlsunina ef varan er heil, ónotuð og í óskemmdum pakkningum. Krafa er um að kvittun fyrir vörunni fylgi eða að varan sé með skiptimiða.
Athugið að ekki er hægt að skipta útsöluvörum.
Hægt er að sækja vörurnar í verslun okkar í Firðinum Hafnarfirði, Fjarðargötu 13-15, 1. hæð.
Sendu okkur línu