Kroko Loko á íslensku
3.390kr.
Kroko Loko á íslensku
Einfalt og skemmtilegt barnaspil fyrir börn frá 4 ára aldri, samblanda af minnis- og teningaspili. Leikurinn snýst um að safna sem flestum dýrum, en það eru 28 dýraspjöld í spilinu, dýr í sjó, á landi eða lofti. Dýraspilunum er raðað á hvolf og leikmenn kasta tening sem segir til um hvort leikmaðurinn á að finna dýr á landi, lofti eða í sjó, eða jafnvel stela dýri frá andstæðing! Leikmenn þurfa því að muna hvar dýrin eru (líkt og í samstæðuspili).
Aldursviðmið: 4+
Leikmenn: 2-4
1 á lager